Fjarðabyggð lagði Keflavík

Brynjar Jónasson skoraði tvö af mörkum Fjarðabyggðar.
Brynjar Jónasson skoraði tvö af mörkum Fjarðabyggðar. Ljósmynd/kff.is

1. deildarlið Fjarðabyggðar lagði Keflavík, 3:2, í A-riðli Lengjubikarkeppninnar í knattspyrnu en leikið var í Fjarðarbyggðarhöllinni á Reyðarfirði.

Fjarðbyggð komst í 2:0 á fyrstu 15 mínútum leiksins og skoraði Brynjar Jónasson bæði mörkin, það síðara kom út vítaspyrnu. Keflvíkingum tókst að jafna metin áður fyrri hálfleikurinn var allur og skoraði Leonard Sigurðsson bæði mörkin. Sigurmark heimamanna skoraði svo Hákon Sófusson á 61. mínútu leiksins.

Keflavík og Fjarðabyggð eru bæði með 6 stig eftir þrjá leiki í riðlinum en ÍA trónir á toppnum með 9 stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert