Guðmundur Steinn að semja við norskt félag

Guðmundur Steinn Hafsteinsson ásamt Bjarna Guðjónssyni fyrrverandi þjálfara Fram.
Guðmundur Steinn Hafsteinsson ásamt Bjarna Guðjónssyni fyrrverandi þjálfara Fram. Ljósmynd/Fram

Knattspyrnumaðurinn Guðmundur Steinn Hafsteinsson er í samningaviðræðum við norska C-deildarfélagið Notodden FK en norska félagið hefur náð samkomulagi við Fram, félag Guðmundar, um kaupverð. Þetta staðfesti umboðsmaður Guðmundar Steins við mbl.is í kvöld.

Guðmundur lék tólf leiki með Fram í Pepsi-deildinni á síðasta tímabili þegar liðið féll úr deildinni og skoraði fimm mörk. Guðmundur er uppalinn í Val en hann hefur einnig spilað fyrir Víking Ólafsvík og HK hér á landi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert