Garner ætti að verða leikfær í sumar

Matt Garner fagnar marki.
Matt Garner fagnar marki. Ljósmynd/Sigfús Gunnar

Bakvörðurinn reyndi Matt Garner gæti orðið leikfær í sumar en hann er að jafna sig eftir slæmt fótbrot gegn Keflavík í september.

Jóhannes Harðarson þjálfari ÍBV segist í samtali við netmiðilinn Fótbolta.net vera vongóður um að Garner nái sér að fullu og geti spilað með liðinu í sumar. Ekki sé þó miðað við sérstaka dagsetningu í þeim efnum en Jóhannes nefnir að verði Garner leikfær áður en Íslandsmótið er hálfnað þá líti hann á það sem bónus.

Að öðru leyti gera Eyjamenn ráð fyrir því að allir leikmenn þeirra verði heilir þegar boltinn rúllar af stað í Pepsí-deildinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert