Ásgeir skoraði fimm - Jafntefli hjá Arnóri

Ásgeir Örn Hallgrímsson.
Ásgeir Örn Hallgrímsson. Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Ásgeir Örn Hallgrímsson skoraði fimm mörk í Íslendingslag í efstu deild franska handboltans þegar að lið hans, Nimes, vann sjö marka sigur á Snorra Steini Guðjónsson og félögum í Sélestat, 20:27.

Snorri Steinn, sem er markahæsti leikmaður liðsins á tímabilinu, skoraði aðeins eitt mark í leiknum.

Þá skoraði Arnór Atlason þrjú mörk úr fjórum skotum fyrir Saint Raphael í 27:27 jafntefli liðsins gegn 27:27.

Saint Raphael er í 4. sæti deildarinnar með 29 stig, Nimes í 11. sætinu með 17 stig og Sélestat í því 13. með 10 stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert