„Liðsheildin skóp þennan sigur“

„Ég er bara fyrst og fremst sáttur með sigurinn. Frábær leikur, erfiður leikur og ég er mjög sáttur með að fara frá Vestmannaeyjum með þrjú stig,“ sagði Ólafur Þór Guðbjörnsson, þjálfari Stjörnunnar í samtali við mbl.is eftir 1:0 sigur liðsins á ÍBV í Pepsi-deild kvenna í kvöld.

Að hans mati skóp liðsheild Stjörnunnar sigurinn. „Þetta var baráttusigur, allir lögðu sitt af mörkum og það var liðsheildin sem skóp þetta fyrst og fremst.“
Nokkur heppnisstimpill var á marki Stjörnunnar. „Auðvitað var smá heppnisstimpill á því en þetta var mark engu að síður.“

„Það er hörkubarátta framundan milli fimm eða sex liða og þetta var mjög mikilvægt skref fyrir okkur í baráttunni sem er framundan.“

Nánar er rætt við Ólaf í meðfylgjandi myndskeiði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert