Takk fyrir að minna mig á það

„Já, ég er sáttur, mjög góð liðsheild og vinnuframlagið gott," sagði Gunnar Borgþórsson þjálfari Selfyssinga eftir sigur á ÍBV 2:0 í 11. umferð Pepsi-deildar kvenna í knattspyrnu á Hásteinsvelli í kvöld.

Selfoss hafði ekki unnið leik síðan 16. júní og fengið tvö stig úr fjórum leikjum á þeim ´tima.

„Já, takk fyrir að minna mig á það, við erum að skora úr færum núna, við fengum ekkert mikið af færum í dag en fengum þó fjögur góð færi og skoruðum úr tveimur. Þar liggur munurinn," sagði Gunnar Rafn við mbl.is.

Viðtalið í heild má sjá á meðfylgjandi myndskeiði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert