Stórkostlegur hjólhestur á Selfossi (myndskeið)

Leikmenn Víkings.
Leikmenn Víkings. mbl.is/Eggert

Hrvoje Tokic, leikmaður Víkings í 1. deild karla, er ekki lengi að láta að sér kveða með liðinu, en hann skoraði magnað mark gegn Selfyssingum er liðin mættust í gær.

Tokic gekk til liðs við Ólafsvíkinga á dögunum, en hann gerði fyrra mark liðsins í 2:0 sigri á Selfossi í gær.

Markið var einstaklega flott, en hann skoraði með hjólhestaspyrnu og átti Vignir Jóhannesson ekki möguleika á að verja í markinu.

Hægt er að sjá markið með því að smella á tengilinn hér fyrir neðan.

Sjáðu markið hjá Tokic

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert