Ánægður með seinni hálfleikinn

„Ég er ángæður með seinni hálfleikinn og karekterinn í liðinu,“ sagði Rúnar Páll Sigmundsson, þjálfari Stjörnunnar eftir 1:1 jafntefli við Fjölni í Pepsideild karla í knattsprnu í kvöld.

„Við vorum afskaplega slappir í fyrri hálfleiknum en gerðum breytingar til góðs í þeim síðari. Veigar Páll kom inn og við það breyttist elikurinn hjá okkur og við pressuðum þá stíft og uppskárum flott mark frá Guðjóni og eitt stig. Ætli það séu ekki sanngjörn úrslit,“ sagði Rúnar Páll.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert