Enginn búinn að gleyma þessum (myndskeið)

Gylfi Þór Sigurðsson leikur á í baráttunni við leikmenn Hollands …
Gylfi Þór Sigurðsson leikur á í baráttunni við leikmenn Hollands á Laugardalsvellinum í október. mbl.is/Golli

Hann situr enn svo sannarlega í minningunni sigurleikur Íslendinga gegn Hollendingum í undankeppni EM á Laugardalsvellinum í október á síðasta ári en þjóðirnar mætast aftur á Amsterdam Arena annað kvöld.

Íslendingar hrósuðu 2:0 sigri á Laugardalsvellinum og þetta var fyrsti sigur Íslands gegn Hollandi frá upphafi. Gylfi Þór Sigurðsson skoraði bæði mörkin en í myndskeiðinu hér að neðan má sjá það helsta sem gerðist í leiknum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert