Tveir þjálfarar í efstu deild karla í knattspyrnu munu þurfa að sitja uppi í stúku þegar tímabilið hefst á nýjan leik vorið 2016.
Arnar Grétarsson þjálfari Blika fékk reisupassann í dag þegar Breiðablik vann Fjölni 2:0 og verður í banni í fyrsta leik Kópavogspilta.
Hermann Hreiðarsson tekur svo út síðari leikinn í sínu tveggja leikja leikbanni en hann var rekinn upp í stúku í annað skiptið í sumar í síðustu umferð þegar Fylkir spilaði við Víking.