Sito staðfestir að hann fari til Fylkis

José Sito Seoane.
José Sito Seoane. Ljósmynd/Sigfús Gunnar Guðmundsson

Spænski framherjinn Sito greinir frá því í samtali við spænska netmiðilinn adiantegalicia.es að hann muni leika með Fylkismönnum á næstu leiktíð.

Sito gekk í raðir ÍBV um mitt tímabil og skoraði sex mörk í 11 leikjum liðsins í Pepsí-deildinni í sumar og átti stóran þátt í að Eyjamenn náðu að halda sæti sínu í deildinni.

„Ég kem til með skipta um félag og ég hlakka til að takast á við nýja áskorun,“ segir Sito í viðtali við spænska netmiðilinn.

Eyjamenn eru ekki sáttir við vinnubrögð Fylkismanna en þeir saka Árbæjarliðið um að hafa samið með ólögmættum hætti við Spánverjann.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert