Nokkur rifbein brotin eða brákuð

Markvörður Víkings Ólafsvíkur, Cristian Martinez , fór meiddur af velli með nokkur brotin eða brákuð rifbein. Þetta sagði Ejub Purisevic þjálfara liðsins í viðtali við mbl.is eftir leik.

Hinn 39 ára gamli Einar Hjörleifsson kom í hans stað á 57. mínútu leiksins en lokatölur urðu 1:1.

Ejub fannst niðurstaðan leiksins vera sanngjörn, 1:1, en Eyjamenn voru margir hverjir brjálaðir yfir vítaspyrnudómi sem leiddi til jöfnunarmarks Ólsara skömmu fyrir leikslok.

Nánar er rætt við Ejub í myndskeiðinu hér að ofan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert