Þór sigraði Hauka 4:2 í 1. deild karla í knattspyrnu í dag en á sama tíma þá tókst Fram að vinna Huginn 1:0 í Fellabæ. Fylgst var með gangi mála hér á mbl.is.
Þór 4:2 Haukar
Huginn 0:1 Fram
Fylgst var með gangi mála hér á mbl.is.
Leik lokið. Þór vinnur Hauka 4:2, nokkuð þægilega á meðan Fram vinnur Huginn 1:0. Þór er með 7 stig eftir fjóra leiki en Fram með 5 stig. Haukar eru með 4 stig og Huginn 3 stig.
80. MAAAAAAARK!!! Þór 4:2 Haukar. Aron Jóhannsson minnkar muninn fyrir Hauka með marki úr vítaspyrnu. Eiga Haukar möguleika á að koma til baka?
68. MAAAAAAARK!!! Þór 4:1 Haukar. Gunnar Örvar að bæta við öðru marki sínu og fjórða fyrir Þór. Þetta er svo gott sem komið í höfn hjá heimamönnum.
48. MAAAAAAAARK!!! Þór 3:1 Haukar. Gauti Gautason er að bæta við þriðja markinu fyrir Þór. Þetta lítur ágætlega út hjá þeim núna.
46. Síðari hálfleikur er hafinn.
Hálfleikur. Fram er að leiða í Fellabæ með marki Ivans Bubalo. Þá komu Þórsarar til baka gegn Haukum og eru komnir í 2:1. Það er þó nægur tími fyrir smá dramatík.
45. MAAAAAAARK!!! Þór 2:1 Haukar. Gunnar Örvar Stefánsson að koma Þórsurum yfir. Skjótt skipast veður í lofti.
37. MAAAAAAAARK!!! Þór 1:1 Haukar. Jónas Björgvin Sigurbergsson skorar fyrir Þór. Þetta er í járnum. Þriðja mark Þórsara í sumar.
13. MAAAAAAARK!!! Þór 0:1 Haukar. Hákon Ingi Einarsson varð fyrir því óláni að koma boltanum í eigið net og Haukar því yfir. Eigum við von á markaveislu í dag?
12. MAAAAAAARK!!! Huginn 0:1 Fram. Framarar eru komnir yfir. Þetta er ekki lengi að gerast í Fellabæ. Ivan Bubalo er heitur þessa dagana en hann var að skora þriðja leikinn í röð.
1. Þetta er farið af stað.
0. Fylgst verður með öllu því helsta hér í lýsingunni.