FH mætir írsku liði

Atli Guðnason og félagar hans hjá FH mæta írska liðinu …
Atli Guðnason og félagar hans hjá FH mæta írska liðinu Dundalk í annarri umferð í forkeppni Meistaradeildar Evrópu. mbl.is/Golli

FH mætir írska liðinu Dundalk í annarri umferð í forkeppni Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu karla. FH-ing­ar sitja hjá í fyrstu um­ferð og í þegar dregið var í aðra umferðina í Nyon í Sviss í dag voru þeir í efri styrk­leika­flokkn­um.

Tak­ist FH-ing­um að slá út and­stæðinga sína í annarri um­ferð eru þeir bún­ir að tryggja sér tvær um­ferðir í viðbót. Liðin sem tapa í þriðju um­ferð Meist­ara­deild­ar­inn­ar fara í fjórðu um­ferð Evrópudeild­ar­inn­ar og leika þar um sæti í riðlakeppn­inni. 

Leikir liðanna fara fram dagana 12/13 júlí annars vegar og 19/20 júlí hins vegar. Fyrri leikur liðanna fer fram í Írlandi og seinni leikurinn á Kaplakrikavelli, heimavelli FH.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert