Martin Svensson skiptir um Víkingslið

Martin Svensson í leik með Víkingi Reykjavík.
Martin Svensson í leik með Víkingi Reykjavík. mbl.is/Árni Sæberg

Danski vængmaðurinn Martin Svensson sem lék til skamms tíma með karlaliði Víkings Reykjavíkur í knattspyrnu í sumar hefur skrifað undir samning þess efnis að leika með Víkingi Ólafsvík út tímabilið.  

Martin Svensson lék þrjá leiki með Víkingi Reykjavík í Pepsi-deildinni og tvo leiki í Borgunar-bikarnum, en honum var vísað af velli með rauðu spjaldi þegar Víkingur Reykjavík féll úr leik í 16 liða úrslitum keppninnar gegn Val.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert