ÍBV gefur eftir í deildinni

Frá leik liðanna í Eyjum í kvöld.
Frá leik liðanna í Eyjum í kvöld. Ljósmynd/Sigfús

Fjölnir vann ÍBV 2:0 í Vestmannaeyjum í afar bragðdaufum leik en leikurinn var sá fyrsti í 13.umferð Pepsi-deildar karla.

ÍBV var sterkari aðilinn til að byrja með en þvert gegn gangi leiksins komst Fjölnir yfir á 34.mínútu. Staðan 0:1 í hálfleik.

Seinni hálfleikur var virkilega bragðdaufur en ÍBV stýrði leiknum. Það var hins vegar Þórir Guðjónsson sem gerði útum leikinn á 90.mínútu þegar hann komst einn í gegn og skoraði.

Fjölnir er nú komið í 23 stig á meðan ÍBV er með 14 stig.

Gunnar Már Guðmundsson og Avni Pepa í fyrri leik liðanna …
Gunnar Már Guðmundsson og Avni Pepa í fyrri leik liðanna í sumar. mbl.is/Golli
ÍBV 0:2 Fjölnir opna loka
90. mín. ÍBV fær hornspyrnu
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert