Garðar og Kristinn berjast um gullskóinn

Garðar B. Gunnlaugsson einu af 14 mörkum sínum í sumar.
Garðar B. Gunnlaugsson einu af 14 mörkum sínum í sumar. mbl.is/Ófeigur Lýðsson

Garðar Bergmann Gunnlaugsson úr ÍA og Valsmaðurinn Kristinn Freyr Sigurðsson berjast um markakóngstitilinn í Pepsi-deild karla.

Þegar einni umferð er ólokið er Garðar markahæstur með 14 mörk en Kristinn Freyr kemur á hæla hans með 13 mörk. Fjölnismaðurinn Martin Lund Pedersen er svo í þriðja sætinu með 9 mörk.

Í lokaumferðinni sem fram fer á laugardaginn mætast Valur og ÍA og þar ráðast úrslitin um gullskóinn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert