Beck samdi við KR-inga

Morten Beck, til hægri, í leik með KR-ingum í sumar.
Morten Beck, til hægri, í leik með KR-ingum í sumar. mbl.is/Ófeigur Lýðsson

KR-ingar hafa gert samning við danska bakvörðinn Morten Beck sem átti góðu gengi að fagna með liðinu á síðustu leiktíð.

Beck, sem er 22 ára gamall, skrifaði undir nýjan tveggja ára samning við KR-inga en hann lék alla 22 leiki liðsins í Pepsi-deildinni í knattspyrnu á síðustu leiktíð, var einn allra besti hægri bakvörður deildarinnar og var valinn besti leikmaður KR eftir tímabilið.

Hann var áður í röðum Horsens og SönderjyskE.


mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert