Sex Stjörnumörk gegn ÍA

Guðjón Baldvinsson skoraði tvö mörk fyrir Stjörnuna í kvöld.
Guðjón Baldvinsson skoraði tvö mörk fyrir Stjörnuna í kvöld. mbl.is/Golli

Stjarnan vann stórsigur á Skagamönnum, 6:2, í fyrsta leik Fótbolta.net móts karla í knattspyrnu í kvöld en hann fór fram í Kórnum í Kópavogi.

Stjörnumenn voru komnir í 4:0 eftir rúman hálftíma en Guðjón Baldvinsson og Hólmbert Aron Friðjónsson skiptu þeim mörkum bróðurlega á milli sín. Jóhann Laxdal og Jósef Kristinn Jósefsson skoruðu hin tvö mörk liðsins í seinni hálfleik. Garðar B. Gunnlaugsson skoraði fyrir ÍA úr vítaspyrnu, minnkaði muninn í 4:1 í fyrri hálfleik, og Ragnar Már Lárusson skoraði síðasta mark leiksins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert