Smidt frá ÍBV í Fram

Simon Smidt í nýju treyjunni.
Simon Smidt í nýju treyjunni. Ljósmynd/fram.is

Simon Kollerup Smidt er genginn í raðir 1. deildarfélags Fram frá ÍBV, en fram.is greinir frá þessu í dag. Daninn lék með Eyjamönnum á síðustu leiktíð þar sem hann skoraði þrjú mörk í Pepsi-deildinni og þrjú mörk í Borgunarbikarnum. 

Smidt skrifar undir samning sem gildir til loka leiktíðar. Hann skoraði í 5:0 sigri Fram á Leikni R. í æfingaleik í Egilshöll í gær og hefur hann verið að æfa með Fram. 

„Það er stjórn knattspyrnudeildar Fram mikil ánægja að fá þennan geðþekka danska leikmann í raðir félagsins," segir í yfirlýsingu frá Fram. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert