Valskonum spáð titlinum

Stjarnan varð Íslandsmeistari í fyrra.
Stjarnan varð Íslandsmeistari í fyrra. mbl.is/Eggert

Valur verður Íslandsmeistari kvenna í knattspyrnu 2017 ef marka má spá þjálfara, fyrirliða og forráðamanna félaganna 10 í deildinni. Spáin var kynnt í höfuðstöðvum Ölgerðarinnar í dag.

Nýliðum Hauka er spáð botnsætinu og Fylki er einnig spáð fallsæti. Íslandsmeisturum Stjörnunnar er spáð 3. sæti og Breiðabliki 2. sæti, en afar litlu munaði á Breiðabliki og Val í spánni.

Spáin:

Valur 268 stig
Breiðablik 266
Stjarnan 253
Þór/KA 215
ÍBV 180
KR 140
Grindavík 111
FH 98
Fylkir 75
Haukar 44

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert