Bikarmeistararnir mæta toppliðinu

Breiðablik er ríkjandi bikarmeistari.
Breiðablik er ríkjandi bikarmeistari. mbl.is/Styrmir Kári

Leikur Þórs/KA og Breiðabliks er stórleikur 16-liða úrslitanna í bikarkeppni kvenna í knattspyrnu en dregið var til þeirra nú í hádeginu og var fylgst með drættinum í beinni textalýsingu á mbl.is.

Breiðablik er ríkjandi bikarmeistari en liðið hafði betur gegn ÍBV, 3:1, í úrslitaleik á síðustu leiktíð en Þór/KA trónir á toppi Pepsi-deildarinnar þar sem liðið hefur unnið alla sína fimm leiki.

Tvær aðrar viðureignir Pepsi-deildarlið verða í 16-liða úrslitunum en FH mætir Val í Kaplakrika og KR tekur á móti Íslandsmeisturum Stjörnunnar.

Drátturinn varð þessi:

KR - Stjarnan

FH - Valur

Þróttur R.  - Haukar

Breiðablik - Þór/KA

Sindri - Grindavík

Selfoss - ÍBV

Tindastóll - Fylkir

HK/Víkingur - Fjölnir

Bikardáttur KSÍ opna loka
kl. 12:17 Þróttur R. Textalýsing Þá er drættinum lokið.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert