Risatilboði hafnað í Hólmbert

Hólmbert Aron Friðjónsson.
Hólmbert Aron Friðjónsson. mbl.is/Golli

Stjarnan fékk á dögunum risatilboð frá Hvíta-Rússlandi í framherjann Hólmbert Aron Friðjónsson, en því var umsvifalaust hafnað.

Miðillinn 433.is greinir frá þessu og segir að um sé að ræða félagið Dinamo Brest. Er í frétt miðilsins sagt að viðræður hafi ekki hafist þar sem Stjarnan hafi hafnað tilboðinu strax, en að það hafi þó verið „ansi duglegt.“

Hólmbert Aron kom endanlega til Stjörnunnar frá KR í vetur og hefur skorað fjögur mörk í Pepsi-deildinni það sem af er tímabili.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert