Nýr Evrópubúningur Stjörnunnar frumsýndur

Knattspyrnulið Stjörnunnar frumsýndi í dag nýjan búning sem það mun klæðast í Evrópudeildinni í sumar. Búningurinn var valinn með netkosningu fyrir rúmum mánuði og á meðfylgjandi myndum má sjá afraksturinn. 

Stjarnan dróst gegn írska liðinu Shamrock Rovers í 1. umferð forkeppninnar. Fyrri leikurinn fer fram á Samsung-vellinum 29. júní og síðari leikurinn á Írlandi 6. júlí. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert