Bandarískur leikmaður til Fylkis

Fylkir fær liðsstyrk.
Fylkir fær liðsstyrk. mbl.is/Golli

Kvennalið Fylkis í knattspyrnu hefur samið við bandarískan leikmann fyrir átökin í síðari hluta Pepsi-deildar kvenna.

Það er Brooke Hendrix, sem var síðast hjá FC Staad sem féll úr efstu deild í Sviss í vor. Hún spilaði áður með liði Southern Mississippi-háskólans í Bandaríkjunum.

Fylkir er í næstneðsta sæti Pepsi-deildar kvenna með fjögur stig eftir tíu leiki og er tveimur stigum frá öruggu sæti.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert