Þór/KA meistari í dag?

Stephany Mayor fagnar marki með tilþrifum.
Stephany Mayor fagnar marki með tilþrifum. mbl.is/Skapti Hallgrímsson

Þór/KA fær í dag tækifæri til þess að tryggja sér Íslandsmeistaratitil kvenna í knattspyrnu í annað skipti en fjórir síðari leikirnir í 17. og næstsíðustu umferð hefjast allir klukkan 14.

Akureyrarkonur mæta þá til Grindavíkur og með sigri í þeim leik er titillinn í höfn fyrir lokaumferðina, en þá á Þór/KA heimaleik gegn FH. Stephany Mayor hefur skorað 17 mörk í 16 leikjum Þór/KA og er líklegust til að verða markadrottning deildarinnar þegar tveimur umferðum er ólokið.

Breiðablik er eina liðið sem getur náð titlinum af Þór/KA. Blikakonur sækja Stjörnuna heim í dag, og vinni þær ekki leikinn er Þór/KA meistari, sama hvernig fer í Grindavík. Breiðablik á svo heimaleik við Grindavík í lokaumferðinni.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert