Stephany Mayor valin best í sumar

Markadrottningin og besti leikmaður Íslandsmótsins, Stephany Mayor, til vinstri, og …
Markadrottningin og besti leikmaður Íslandsmótsins, Stephany Mayor, til vinstri, og Bianca Sierra, eftir að titilinn var í höfn. mbl.is/Skapti Hallgrímsson

Stephany Mayor, framherji Þórs/KA, var útnefnd leikmaður ársins í Pepsi-deild kvenna árið 2017. Hún tók við viðurkenningu þess efnis eftir að Þór/KA tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn í lokaumferðinni í dag.

Stephany Mayor, sem er landsliðskona Mexíkó, skoraði 19 mörk í 18 leikjum í deildinni í sumar og var langmarkahæst. Hún innsiglaði einmitt sigur Þór/KA í dag, 2:0 gegn FH, sem tryggði liðinu titilinn.

Sandra Mayor, lengst til vinstri, fagnar með tilþrifum einu af …
Sandra Mayor, lengst til vinstri, fagnar með tilþrifum einu af mörkum sínum í sumar. mbl.is/Skapti Hallgrímsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert