Kolbeinn æfir með Bröndby í viku

Kolbeinn Þórðarson í leik með Breiðabliki í sumar.
Kolbeinn Þórðarson í leik með Breiðabliki í sumar. mbl.is/Árni Sæberg

Kolbeinn Þórðarson, leikmaður Breiðabliks, hélt til Danmerkur í dag þar sem hann mun æfa með unglingaliði Bröndby næstu vikuna. Þetta kemur fram í frétt á visi.is

Kolbeinn kom við sögu í sjö deildarleikjum með meistaraflokki Breiðabliks í sumar auk þess að vera lykilleikmaður í 2. flokki félagsins. 

Kolbeinn mun mögulega hitta fyrir samlanda sinn á meðan hann æfir með Bröndby, en Hjörtur Hermannsson spilaði með aðalliði félagsins.   

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert