Er Ólafur Karl á leið til Vals?

Ólafur Karl Finsen í Evrópuleik gegn Shamrock Rovers.
Ólafur Karl Finsen í Evrópuleik gegn Shamrock Rovers. Ljósmynd/Dave Lee

Íslandsmeistarar Vals hafa boðað til fréttamannafundar síðdegis í dag þar sem kynntur verður til leiks nýr leikmaður félagsins.

Sterkur orðrómur hefur verið í gangi að Stjörnumaðurinn Ólafur Karl Finsen sé á leið til Valsmanna en það kemur í ljós klukkan 17 hvort hann sé leikmaðurinn sem Valsmenn eru að fá til liðs við sig. Samningur Ólafs við Stjörnuna rann út í dag en hann hefur leikið með meistaraflokki félagsins frá árinu 2010.

Ólafur, sem sleit krossband í byrjun tímabilsins á síðasta ári, kom við sögu í 12 leikjum Garðabæjarliðsins í Pepsi-deildinni á síðustu leiktíð og skoraði í þeim eitt mark.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert