Óvíst hvort Nani mæti Þýskalandi

Nani æfði einn hluta af æfingu portúgalska liðsins í gær.
Nani æfði einn hluta af æfingu portúgalska liðsins í gær. AFP

Óvíst er hvort portúgalski kantmaðurinn Nani, leikmaður Manchester United, geti leikið gegn Þýskalandi í kvöld kl. 18:45 í B-riðli Evrópumótsins.

Nani hefur átt við meiðsli í hægri fæti að stríða en þessi meiðsli héldu honum frá keppni í tvo mánuði á nýliðinni leiktíð í Englandi. Paulo Bento þjálfari Portúgals sagði í gær að staðan yrði tekin á Nani eftir æfingu í dag en Nani er eini leikmaður Portúgals sem óvissa er um.

mbl.is

Bloggað um fréttina

LEIKIR Í DAG - 26. APRÍL

Útsláttarkeppnin

LEIKIR Í DAG - 26. APRÍL

Útsláttarkeppnin