„Bale er betri en Hazard“

Gareth Bale er betri en Hazard samkvæmt Lukaku.
Gareth Bale er betri en Hazard samkvæmt Lukaku. AFP

Jordan Lukaku, leikmaður belgíska landsliðsins í knattspyrnu, telur að Gareth Bale, leikmaður velska landsliðsins, sé aðeins betri en Eden Hazard, sem er einn af lykilmönnum belgíska liðsins.

Belgía og Wales mætast í 8-liða úrslitum Evrópumótsins á föstudag en bæði lið hafa tapað einum leik á mótinu til þessa.

Bale, sem var keyptur á metfé frá Real Madrid til Tottenham, hefur verið í lykilhlutverki hjá Wales og sömu sögu má segja af Eden Hazard sem hefur leitt Belgíu áfram. Lukaku telur þó Bale vera í aðeins hærri gæðaflokki.

„Bale er í aðeins hærri gæðaflokki en Hazard. Hann hefur spilað lengur á þessu stigi. Bale er alltaf stöðugur hjá félagsliði sínu á meðan Eden er ekkert svo stöðugur,“ sagði Lukaku.

mbl.is

LEIKIR Í DAG - 26. APRÍL

Útsláttarkeppnin

LEIKIR Í DAG - 26. APRÍL

Útsláttarkeppnin