Bjarki Már: Það verða slagsmál

„Þessi leikur verður að vinnast," sagði varnartröllið Bjarki Már Gunnarsson, landsliðsmaður í handknattleik, eftir fyrstu æfingu íslenska landsliðsins í Jyske bank boxen í Herning á Jótlandi í dag spurður um viðureignina við Austurríki sem bíður landsliðsins á morgun þegar keppni í milliriðli hefst.

„Við höfum búið vel undir þennan leik og nýtt þann stutta tíma sem hefur gefist frá síðasta leik til þess að fara vel yfir austurríska liðið. Það verða bara slagsmál á morgun," sagði Bjarki Már Gunnarsson sem hefur farið á kostum í íslensku vörninni í tveimur síðustu leikjum þess.

Nánar er rætt við Bjarka Má á meðfylgjandi myndskeiði.

Viðureign Íslands og Austurríkis hefst klukkan 17.15 á morgun. Leiknum verður lýst í beinni textalýsingu á mbl.is.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert