West Ham lá fyrir Liverpool

Barátta í leik West Ham og Liverpool í kvöld.
Barátta í leik West Ham og Liverpool í kvöld. Reuters

Liverpool lagði West Ham að velli, 2:1, í leik liðanna á Upton Park í kvöld. Dirk Kyut og Peter Crouch komu Liverpool í 2:0 í upphafi síðari hálfleik en Blanco Kepa náði að laga stöðuna fyrir heimamenn 15 mínútum fyrir leikslok. Sheffield United vann góðan sigur á Fulham, 2:0, með mörkum frá John Stead og Michael Tonge. Heiðar Helguson kom inná í liði Fulham á 33. mínútu. Þá skildu Portsmouth og Middlesbrough jöfn, 0:0. Nokkrar mínútur eru eftir af leik Reading og Wigan og er Reading yfir, 2:1. Ívar Ingimarsson skoraði fyrra mark Reading.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert