Chelsea og Manchester United sigurstranglegust

Chelsea-menn þykja sigurstranglegir í Meistaradeild Evrópu.
Chelsea-menn þykja sigurstranglegir í Meistaradeild Evrópu. Reuters

Breskir veðbankar telja að Chelsea og Manchester United séu sigurstranglegustu liðin í Meistaradeild Evrópu í knattspyrnu eftir að dregið var til átta liða úrslitanna í dag. Þau eru bæði með líkurnar 3:1. Liverpool er í þriðja sætinu með líkurnar 9:2.

Valencia frá Spáni þykir líklegast til að ógna veldi ensku liðanna og eru sigurlíkur liðsins taldar 7:1. AC Milan kemur næst með 15:2 en möguleikar Bayern München, Roma og PSV Eindhoven eru taldir síðri.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert