Hughes spáir Man.Utd. titlinum

Mark Hughes hefur leikið bæði með Manchester United og Chelsea.
Mark Hughes hefur leikið bæði með Manchester United og Chelsea. Reuters

Mark Hughes knattspyrnustjóri Blackburn Rovers spáir því að Manchester United hafi betur í baráttunni við Chelsea um enska meistaratitilinn í vor. United hefur sex stiga forskot á Chelsea þegar átta umferðir eru eftir en Hughes mætir með lærisveina á Old Trafford á laugardaginn og etur kappi við Manchester United.

Hughes lék bæði með Manchester United og Chelsea á ferli sínum, 345 leiki með United og 95 fyrir Chelsea.

,,Ég held að United verði meistari en Chelsea á eftir að sauma vel að þeim á lokasprettinum. Hins vegar held ég að hungrið sé meira í herbúðum Manchester United og það mun skipta sköpum í þessari baráttu," segir Hughes.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert