Crouch ánægður með þrennuna

Peter Crouch fagnar þriðja marki sínu gegn Arsenal í dag.
Peter Crouch fagnar þriðja marki sínu gegn Arsenal í dag. Reuters

Peter Crouch framherji Liverpool var að vonum sáttur eftir leik Liverpool og Arsenal en framherjinn stóri og stæðilegi skoraði þrennu þegar Liverpool skellti Arsenal,4:1, á Anfield.

,,Við erum mjög ánægðir með að hafa skorað fjögur og lagt að velli mjög gott lið. Stjórinn minnti okkur á fyrir leikinn úrslitin í fyrri leikjunum á móti Arsenal á tímabilinu og við náðum að bæta eitthvað fyrir þá leiki með þessum sigri. Það var gaman að skora þrennu sérstakt að ná því gegn Arsenal," sagði Crouch sem hefur nú skorað 9 mörk í úrvalsdeildinni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert