Þrír orðaðir við West Ham í dag

Jermain Defoe er einn þeirra sem sagður er vera undir …
Jermain Defoe er einn þeirra sem sagður er vera undir smásjánni hjá West Ham. Reuters

Ensk blöð orða í dag þrjá leikmenn við Íslendingafélagið West Ham en fullyrt er að Eggert Magnússon og félagar hafi mikinn hug á að fá þá til liðs við sig. Það eru Shaun Wright-Phillips hjá Chelsea, Luke Young hjá Charlton og Jermain Defoe hjá Tottenham.

West Ham reyndi árangurslaust að fá Wright-Phillips í janúar og er sagt vera reiðubúið að greiða fyrir hann 10 milljónir punda. Young lék lengi undir stjórn Alans Curbishleys hjá Charlton, sem fyrirliði um skeið, og hann er sagður vilja fá hann aftur. Ennfremur hafi hann mikinn áhuga á Defoe, sem er uppalinn hjá West Ham en féll í mikla ónáð hjá stuðningsmönnum félagsins þegar hann fór yfir til óvinanna í Tottenham Hotspur.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert