Liverpool sigraði Toulouse í Frakklandi

Steven Gerrard og Mohamed Fofana eigast við í leiknum í …
Steven Gerrard og Mohamed Fofana eigast við í leiknum í Toulouse í dag. Reuters

Liverpool sigraði Toulouse, 1:0, í fyrri viðureign liðanna í 3. umferð forkeppni Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu en leikurinn fór fram á heimavelli franska liðsins í dag.

Andriy Voronin skoraði markið með stórglæsilegu skoti af 25 metra færi á 43. mínútu. Þetta var fyrri viðureign liðanna en liðin mætast aftur á Anfield 28. ágúst og sigurliðið kemst í riðlakeppni Meistaradeildarinnar.

Lið Liverpool: Reina, Finnan, Carragher, Hyypiä, Arbeloa, Benayoun, Gerrard, Mascherano, Babel, Voronin, Crouch.
Varamenn: Itandje, Agger, Riise, Torres, Alonso, Kuyt, Sissoko.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert