Beckham skoraði fyrsta mark sitt fyrir Galaxy

David Beckham var fyrirliði Galaxy í leiknum í nótt.
David Beckham var fyrirliði Galaxy í leiknum í nótt. Reuters

Enski knattspyrnumaðurinn David Beckham skoraði í nótt fyrsta mark sitt fyrir bandaríska knattspyrnuliðið Los Angeles Galaxy og lagði upp annað mark, sem Landon Donovan skoraði, í 2:0 sigri liðsins á D.C. United.

Beckham, sem gekk til liðs við bandaríska liðið fyrr á árinu, hefur lítið getað leikið með því til þessa vegna meiðsla. Beckham var þó í byrjunarliðinu í nótt og á 28. mínútu sýndi hann hvers hann er megnugur þegar hann skoraði beint úr aukaspyrnu af 20 metra færi.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert