Benítez: Sýndum hvað liðið er sterkt

Leikmenn Liverpool fagna marki Peter Crouch á Anfield í kvöld.
Leikmenn Liverpool fagna marki Peter Crouch á Anfield í kvöld. Reuters

Rafael Benítez knattspyrnustjóri hrósaði leikmönnum sínum eftir 4:0 sigurinn á Tolouse í kvöld. Liverpool lék án Steven Gerrards og Jamie Carraghers en það kom ekki að sök og Liverpool verður í pottinum þegar dregið verður í riðla Meistaradeildarinnar á fimmtudag.

,,Ég var virkilega ánægður með leikmenn mína og við sýndum hversu sterkt liðið er. Við skoruðum fjögur góð mörk og hefðum getað skorað fleiri. Við höfum nú tvo leikmenn í hverri stöðu og allir geta séð að leikmannahópur okkar er sterkari nú en síðustu árin. Það var gott fyrir Crouch og Kuyt að skora og báðir unnu þeir vel fyrir liðið og þá fannst mér gott að geta gefið Sebastian Leto og Lucas Leiva tækifæri með liðinu í fyrsta sinn," sagði Benítez.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert