Totti ekki með gegn Man Utd

Francesco Totti fyrirliði Roma.
Francesco Totti fyrirliði Roma. Reuters

Roma varð fyrir miklu áfalli í leiknum gegn Cagliari í gær þegar fyrirliðinn Francesco Totti meiddist á ökkla og í dag greindu forráðamenn Roma liðsins frá því að Totti yrði ekki með í leik liðsins gegn Englandsmeisturum Manchester United í Meistaradeildinni. Þau mætast í fyrri leiknum í 8 liða úrslitunum í Róm á þriðjudagskvöld.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert