Benítez: Vissi að við myndum skora

Fernando Torres fagnar marki sínu ásamt Steven Gerrard.
Fernando Torres fagnar marki sínu ásamt Steven Gerrard. Reuters

Rafael Benítez knattspyrnustjóri Liverpool var ánægður með sigur sinna manna á Blackburn í dag og með honum náði Liverpool fimm stiga forskoti á Everton í baráttu liðanna um fjórða sætið í deildinni sem gefur rétt til þess að spila í Meistaradeildinni á næstu leitkíð.

„Við vissum að þetta yrði erfiður leikur svo við þurftum að vera vel einbeittir og leggja á mikla vinnu. Í hálfleik sagði ég þeim að einbeita sér að því að spila fótbolta. Ég vissi að við myndum skora og ég held að frábær samvinna Gerrards og Torres hafi ráðið úrslitum þegar upp stóð,“ sagði Benítez eftir leikinn.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert