Gerrard verður með Liverpool annað kvöld

Steven Gerrard
Steven Gerrard Reuters

Steven Gerrard, fyrirliði Liverpool, er orðin nægilega góður af meiðslum sínum til að spila með Liverpool á móti Chelsea annað kvöld en þá mætast liðin í fyrri leik sínum í undanúrslitum Meistaradeildarinnar á Anfield.

Gerrard missti af leik Liverpool við Fulham um helgina vegna meiðsla á hálsi. „Hann segist vera tilbúinn og við munum ræða það við lækni félagsins. Annars er auðvelt að komast að því hvort hann er tilbúinn að spila. Ég kem aftan að honum og klappa honum á vinstri öxlina og ef hann lítur við án þess að finna til þá er hann klár,“ sagði Rafael Benítez, knattspyrnustjóri Liverpool.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert