Lampard til í slaginn

Frank Lampard er til í að spila annað kvöld.
Frank Lampard er til í að spila annað kvöld. Reuters

Frank Lampard, miðjumaður hjá Chelsea, er til í slaginn á nýjan leik eftir að hafa tekið sér nokkurra daga frí frá knattspyrnunni til að vera hjá móður sinni sem er alvarlega veik.

„Frank er klár í slaginn og vonast til að spila í Meistaradeildinni á móti Liverpool. Móðir hans er enn mikið veik en ástand hennar er stöðugt og það veit vonandi á gott.

Frank vill þakka skilninginn sem hann hefur mætt hjá Chelsea og eins fjölmiðlum á þessum erfiðu tímum fyrir hann og fjölskyldu hans, sagði Steve Kutner umboðsmaður hans í dag. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert