Ferguson vill skrifa nýjan kafla í sögu United

Alex Ferguson
Alex Ferguson Reuters

Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Manchester United, hvetur leikmenn sína til að skrifa nýjan kafla í sögu félagsins í kvöld þegar liðið mætir Barcelona á Nou Camp - þar sem United varð meistari árið 1999.

„Strákarnir hafa allir séð úrslitaleikinn frá 1999 margoft en nú er komið að þeim að skrifa nýjan kafla í sögu félagsins og ég held þeir séu nógu góðir til að gera það,“ segir Ferguson.

Hann sagði að nú væri að verða kominn áratugur síðan United vann titilinn. „Liðið sem við erum með núna þarf ekki að hafa áhyggjur af fortíðinni og verður ekki dæmt af henni. Liðið verður dæmt af því sem það gerir núna,“ sagði Ferguson.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert