Beckham ráðleggur Ronaldo

David Beckham ráðleggur Cristiano Ronaldo að halda kyrru fyrir hjá …
David Beckham ráðleggur Cristiano Ronaldo að halda kyrru fyrir hjá Manchester United. Reuters

Forveri Cristiano Ronaldo í treyju 7 hjá Manchester United, David Beckham, ráðleggur Ronaldo að vera áfram í herbúðum United og að það sé rétta félagið fyrir hann.
Sem aðdáandi Manchester United vill Beckham að Ronaldo leiki áfram fyrir liðið, en einnig telur hann það heppilegast fyrir Ronaldo sjálfan.

 „Ég trúi því að Ronaldo sé í réttu liði, þar sem hann eigi að vera í áfram, jafnvel þótt Real Madríd sé stórkostlegt lið og eitt af stærstu félögunum. Ferill Ronaldo hjá United er bara rétt að byrja. En annars kemur þetta mér í sjálfu sér ekkert við,“ var haft eftir David Beckham, sem jafnframt sagði Ronaldo ótrúlegan leikmann sem verðskuldaði allt það lof sem á hann væri borið.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert