Campo samdi við Ipswich til tveggja ára

Ivan Campo er genginn í raðir Ipswich.
Ivan Campo er genginn í raðir Ipswich. Reuters

Spænski miðvallarleikmaðurinn Ivan Campo gekk í gær til liðs við enska 1. deildarliðið Ipswich. Campo, sem er 34 ára gamall, kemur til Ipswich frá Bolton án greiðslu þar sem samningur hans við Bolton var útrunninn.

Campo gerði tveggja ára samning við Ipswich og leikur væntanlega sinn fyrsta leik með liðinu um næstu helgi þegar liðið sækir Jóhannes Karl Guðjónsson og félaga hans í Burnley heim.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert