Yakubu úr leik til vorsins

Aiyegbeni Yakubu verður ekki meira með Everton í vetur.
Aiyegbeni Yakubu verður ekki meira með Everton í vetur. Reuters

Ayiegbeni Yakubu, nígeríski knattspyrnumaðurinn hjá Everton, sleit hásin í fæti í leik liðsins gegn Tottenham í ensku úrvalsdeildinni í dag og leikur ekki meira með á þessu keppnistímabili.

Atvikið átti sér stað strax á 11. mínútu leiksins, í návígi við Ledley King, og leit sakleysislega út en framherjinn kröfugi þurfti að fara af velli og David Moyes knattspyrnustjóri staðfesti síðan alvarleika meiðslanna.

Louis Saha kom inná í hans stað en ekki vildi betur til en svo að hann tognaði aftan í læri í seinni hálfleiknum og þurfti líka að fara af velli. Þar með er aðeins einn sóknarmaður tilbúinn hjá Everton fyrir næstu leiki, Victor Anichebe.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert