Chelsea, Roma og Panathinaikos áfram

Nicolas Anelka ætlar áfram í Meistaradeildinn með Chelsea.
Nicolas Anelka ætlar áfram í Meistaradeildinn með Chelsea. Reuters

Chelsea, Roma og Panathinaikos tryggðu sér í kvöld þau þrjú sæti sem laus voru í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu. Eiður Smári Guðjohnsen og félagar í Barcelona töpuðu á heimavelli og lék Eiður Smári síðasta stundarfjórðunginn og átti mjög góðan leik.

Tvö efstu liðin í hverjum riðli komast áfram og það sem er í þriðja sæti fer í UEFA-bikarinn.

Úrslit leikja og lokastaðan í riðlinum:

A-riðill:

Chelsea - Cluj 2:1 (Salomon Kalou 40., Didier Drogba 71.  - Yssouf Koné 56.)

Roma - Bordeaux 2:0 (Matteo Brighi 61., Francesco Totti 79.)

- Staðan: Roma er með 12 stig, Chelsea 11, Bordeaux 7 og Cluj 4.

B-riiðll:

Panathinakios - Anorthosis 1:0 (Giorgios Karagounis 69.)

Werder Bremen - Inter 2:1 (Claudio Pizarro 63., Markus Rosenberg 81. - Zlatan Ibrahimovic 89.)

- Staðan: Panathinaikos 10 stig, Inter 8, Bremen 7, Anorthosis 6.

C-riðill:

Barcelona - Donetsk 2:3 (Sylvinho 59., Sergio Busquets Burgos 83. - Aleksandr Gladky 31., 58., Fernandinho 75.)

Basel - Sporting 0:1 (Yannick 19.)

- Barcelona og Sporting áfram. Donetsk fer í UEFA-bikarinn.

C-riðill:

Marseille - Atletico Madrid 0:0

PSV - Liverpool 1:3 (Danko Lazovic 36. - Ryan Babel 45., Albert Riera 68., David N'Gog 78.)

- Liverpool 14, Atletico Madrid 11, Marseille 4, PSV 3.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert