Lærisveinar Guðjóns úr botnsætinu

Guðjón Þórðarson.
Guðjón Þórðarson. www.crewealex.net

Guðjón Þórðarson og lærisveinar hans í enska 2. deildarliðinu Crewe fögnuðu sigri gegn Tranmere, 2:1, í dag og komust með sigrinum úr botnsæti deildarinnar. Crewe er nú í þriðja neðsta sæti en liðið hefur vermt botnsætið nær allt tímabilið.

Það stefndi allt í enn einn ósigur Crewe en strákarnir hans Guðjóns neituðu að gefast upp og náðu að tryggja sér sigur með tveimur mörkum á síðustu 7 mínútum leiksins og voru Mark Carrington og Joel Grant þar af verki.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert